Sjálfræði og aldraðir

Í ljósi íslenskra aðstæðna

Flest teljum við sjálfsagt að ráða því hvernig heimili okkar lítur út, hvernig við erum klædd eða hvenær við förum í bað. En þegar fólk þarf að flytja á öldrunarstofnanir getur þrengt mjög að þessum hversdagslegu valkostum. Markmið höfunda er að kanna hvernig þessu er háttað hérlendis.

Í bókinni eru birtar niðurstöður spurningakönnunar sem gerð var á fimm íslenskum öldrunarstofnunum. Í könnuninni er reynt að varpa ljósi á hversu mikil áhrif íbúarnir hafa á sitt daglega líf og umhverfi. Höfundarnir túlka niðurstöður könnunarinnar og telja hana sýna ótvírætt að íbúar öldrunarstofnana búi við skert sjálfræði um athafnir daglegs lífs. Þeir færa jafnframt rök fyrir mikilvægi þess að að standa betur vörð um sjálfræði vistmanna en nú er gert.

Vilhjálmur fjallar í inngangskafla um sjálfræðishugtakið, merkingu þess og mikilvægi í ljósi aðstæðna aldraðra á vistheimilum. Ástríður skrifar kafla um íslensk lög um málefni aldraðra og skoðar þau í ljósi sjálfræðis.

Rit þetta veitir nýja innsýn í veruleika íslenskra öldrunarheimila og vekur brýnar spurningar um það hvernig við getum best stuðlað að virðingu þeirra sem eiga þar heima.

Sjálfræði og aldraðir er fyrsta bókin í nýrri ritröð Siðfræðistofnunar, Siðfræði og samtími. Ritröðin er styrkt af Kristnihátíðarsjóði.

Ástand: gott bæði innsíður og kápa

Sjálfræði og aldraðir

kr.1.500

Ekki til á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,235 kg
Ummál 13 × 1,5 × 21 cm
Blaðsíður:

196 +línurit +töflur

ISBN

9979545690

Kápugerð:

Kilja

Útgefandi:

Siðfræðistofnun og Háskólaútgáfan

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2004

Hönnun:

Börkur Arnarson (kápuhönnun)

Höfundur:

Ástríður Stefánsdóttir, Vilhjálmur Árnason

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Sjálfræði og aldraðir – Uppseld”