Siðfræði – Páll Skúlason

Í fyrsta hluta bókarinnar vakir fyrir höfundi að skýra nokkur frumatriði siðferðisins eins og það blasir við honum og að greina erfiðleika sem hann telur steðja að siðferði okkar. Í örðum hluta leitast hann við að skýra nokkur frumatriði siðfræðinnar og að varpa ljósi á vandkvæði hennar sem sjálfstæðrar fræðigreinar. Í þriðja hluta bókarinnar er glímt við gátu siðferðisins eins og það horfir við einstaklingi sem finnur sig knúinn til að taka ákvarðarni á siðferðilegum forsendum. Slíkar forsendur birtast í mynd siðaboða og þessi hluti er því hugsaður sem tilraun til að nálgast og greina frumforsendur þeirra. Þar er stuðst við ákveðnar siðferðishugmyndir sem skýrðar eru í fyrsta hluta og tekið mið af þeirri hugmynd um siðfræði sem skýrð er í öðrum hluta. Höfuðverkefni þriðja hlutans er að leita svara við spurningunni á hvaða forsendum unnt er að taka siðferðilegar ákvarðanir.. (Heimild: bakhluti bókarinnar)

Bók þess er 1. útgáfa

Bókin Siðfræði er skipt niður í þrjá hluta samtals 17 kafla + Eftirmáli, þeir eru:

I Siðferði, gildismat og erfiðleikar

  • Að skoða og ræða siðferði
  • Heimurinn sem uppspretta gæða
  • Siðferðisgæði
  • Erfiðleikar

II Hvað er siðfræði?

  • Almenn atriði um siðfræði og siðferði: viðhorf og fordóma
  • Siðfræðin sem fræðigrein
  • Siðfræðin og siðferðileg þekking

III Ákvarðanir og siðaboð

  • Ákvarðanir og frelsi
  • Ákvarðanir og siðferðileg breytni
  • Skyldur og siðaboð
  • Siðaboð og siðareglur
  • Samviska og siðaboð
  • Ákvarðanir og samviska
  • Skuldbindingar og ákvarðanir
  • Skyldur og skuldbindingar
  • Styrkur og takmarkanir kenninganna
  • Siðboð og forsendur ákvörðunar

Niðurlag

Eftirmáli

  • Viðauki: Afstaða mannsins til náttúrunnar
  • Eftirmálsgreinar
  • Æfingar
  • Orðskýringar
  • Ýmis rit og greinar um siðfræði á íslensku
  • Erlend ritaskrá
  • Nafna- og atriðisorðaskrá

Ástand: gott, bæði innsíður og kápa

Siðfræði - Páll Skúlason

kr.1.900

1 á lager

Vörunúmer: 8502237 Flokkur: Merkimiðar: , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,520 kg
Ummál 16 × 3 × 24 cm
Blaðsíður:

247 +nafna- og atriðisorðaskrá: bls. 240-247 +orðskýringar: s. 206-220

ISBN

9789979906251

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Rannsóknarstofnun í siðfræði

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1990 (1. útgáfa)

Höfundur:

Páll Skúlason

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Siðfræði – Páll Skúlason”