Samningatækni
Gerðu frábæra samninga, náðu sátt og skapaðu traust
Samningaviðræður eru hluti af daglegu lífi fólks, hvort sem er í starfi, vegna persónulegra fjármála eða í samskiptum við fjölskyldu og vini. Í þessari bók gefur Aðalsteinn Leifsson hagnýtar ráðleggingar sem byggja á rannsóknum til að hjálpa þér að ná árangri hvort sem þú semur fyrir þig, fjölskylduna eða fyrirtækið.
Samningatækni fjallar um hvernig þú getur staðið á þínu þegar tekist er á um eitt atriði eins og verð, hvernig best er stýra viðræðum frá átökum og byggja upp traust og samstarf og hvernig þú getur undirbúið þig og náð árangri í krefjandi aðstæðum. Í bókinni er fjöldi raunverulegra dæma, verkefni sem lesendur geta spreytt sig á og hagnýt ráð fyrir mikilvægar samningaviðræður sem allir standa frammi fyrir á lífsleiðinni. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Samningatækni er skipt niður í 7 hluta, þeir eru:
- Þú getur orðið frábær samningamaður
- Frábær árangur í skiptingu takmarkaðra verðmæta
- Þú getur skapað verðmæti með því að auka traust
- Bættu stöðu þína með vönduðum undirbúningi
- Þú getur stjórnað gangi viðræðnanna
- Mikilvægar samningaviðræður
Ástand: gott








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.