Saga Reykjavíkur – í þúsund ár 870-1870 seinni hluti
Hin glæsilega og eigulega ritröð um Sögu Reykjavíkur er nú til enda leidd með útgáfu þessara tveggja lokabinda verksins um tíu alda tímabilið frá 870 til 1870. Í fyrri hlutanum er m.a. farið yfir sögu landnáms og fyrstu byggðar á Íslandi, fjallað um þéttbýlismyndun og upphaf, ris og hnignun Innréttinganna á átjándu öld. Þar kemur margt spennandi í ljós, allt frá fyrsta verkfallinu á Íslandi til þorpsmyndunar í Reykjavík og fjallað er um mannréttindi og lífsbaráttu íbúanna. Í seinni hlutanum fer bærinn að taka á sig skýrari mynd höfuðstaðar. Horft er til mannlífs út frá ýmsum sjónarhornum, reynt að setja sig í spor stríðandi alþýðu jafnt sem veisluglaðra góðborgara og erlendra ferðalanga sem tóku að heimsækja land og þjóð í byrjun 19. aldar. Margar myndir sem teknar voru á Íslandi í árdaga ljósmyndunar eru birtar í bókinni og margvíslegar töflur og ítarupplýsingar eru dregnar fram í dagsljósið. Um leið eru efnisþættir tengdir samtímanum í nútímalegu myndmáli á einkar viðfelldinn hátt. Þannig bera bækurnar samtíma sínum vitni um leið og þær veita okkur innsýn í horfna heima. Í verkinu er reynt að glöggva sig á þróun atvinnulífsins um leið og fylgst er með sprotum nýrrar menningar, í menntamálum, stjórnmálum, leiklist, tónlist og félagsmálum. Saga Reykjavíkur er saga allra landsmanna og á heima á öllum íslenskum menningarheimilum. (Heimild: Bókatíðindi)
Bókin Saga Reykjavíkur í þúsund ár 870 til 1870 fyrri hluti, skiptist í 20 kafla, þeir eru:
- Sjávaraflinn er hinn mesti bjargræðisvegur
- Landnám nýrra samfélagshátta
- Allir í verslun
- Búðirnar fullar af fólki
- Mylluvængir og hamarshögg
- Verstöðin Reykjavík
- Hafsins hvikuli fengur
- Búfé og gróska í garðrækt
- Búnaður og bæjarbragur
- Hvergi vinna konur meira
- Að eignast öflugan höfuðstað
- Aðalstaður Íslands
- Þingvellir eða Reykjavík?
- Nú blása frelsisvindar
- Bæjarfulltrúarnir nýju
- Stórborg eins og Reykjavík
- Fagur og íslenskur Ingólfsbær
- Misjöfn lífsins gæði
- Dáindis líflegt í Vík
- Fagrar listir og félagslíf
- Barnaskóli til framtíðar
- Að vaxa og þroskast í stríði
Viðauki
- Tilvísanir
- Heimildaskrá
- Nafnaskrá
- Atriðisorðaskrá
- Myndaskrá
Ástand: gott, ónotað með öllu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.