Ofsi
Sögusviðið er Ísland á þrettándu öld: Gissur Þorvaldsson snýr breyttur maður heim úr Noregsför; fús til sátta við erkióvini sína, Sturlungana, eftir áralangan ófrið. Þeir efast um heilindi hans en sannfærast þegar Gissur leggur til að sonur hans kvænist stúlku af ætt Sturlunga. Fjölmenni er boðið til brúðkaupsveislu að Flugumýri þar sem innsigla á friðinn. Ekki mæta þó allir sem boðið var. Eyjólfur ofsi glímir bæði við stórlynda eiginkonu og stríða lund: Í vígahug, með svarta hunda á hælunum, ríður hann með flokk manna að Flugumýri í veislulok; nýsaminn friður er ekki allra … (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott







Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.