Ný framtíðarsýn
Nýir stjórnarhættir við endurreisn atvinnulífsins
Í þessari bók fjallar Þorkell Sigurlaugsson um nauðsyn þess að þjóðin móti sér nýja framtíðarsýn við endureisn efnahagslífsins þar sem nír stjórnunarhættir, bætt viðskiptasiðferði, sjálfbærni og nýskum eru höfð að leiðarljósi.
Í bókinni er fjallað ítarlega um stjórnun fyrirtækja – hlutverk stjórna og æðstu stjórnenda Þorkell telur brýnt að innleiða ný gildi við stjórnun fyrirtækja og endurvekja ýmis gömul gildi sem hunsuð voru í hrunadansi síðustu ára. Ásamt hinni efnahagslegu umgjörð og eftirlitskerfi ríkisvaldsins, skipta stjórnunarhætti fyrirtækja höfuðmáli í þeirri uppbyggingu sem framundan er. Það er boðskapur bókarinnar að full ástæða sé til bjartsýni ef rétt sé á málum haldið. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Ný framtíðarsýn er skipt í 8 kafla, þeir eru:
- Að fortíð skal hyggja
- Nýja þekkingarhagkerfið
- Fyrirtækin og samfélagsábyrgð þeirra
- Stjórnun
- Hlutverk stjórna
- Starfshættir stjórna
- Stjórnandinn
- Við þurfum nýja framtíðarsýn
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.