Næturgalinn

Næturgalinn er ævintýri eftir danska skáldið og rithöfundinn H.C. Andersen. Í kínverska keisaradæminu er mikið um dýrðir, postulínshallir og skrúðgarðar gleðja þar gestsaugu. Öllum sem heimsækja staðinn ber þó saman um að af beri söngur næturgalans, sem syngur fyrir fátæka fólkið á kvöldin. Um þetta les keisarinn sjálfur í bók, dag nokkurn, og verður steinhissa á því að hafa ekki fyrr vitað um tilvist næturgalans. Óðara lætur hann senda út leitarflokk, til að finna fuglinn, svo hann megi hlýða á söng hans. (Heimild: Wikipedia)

PP Forlag minnist 200 ára afmælis H.C. Andersens á veglegan hátt með úgáfu á 5 af ævintýrum hans. Þau eru: Eldfærin, Ljóti andarungin, Nýju fötin keisarans, Næturgalinn og Litla stúlkan með eldspýturnar. (Heimild: Bókatíðindi)

Ástand: gott, bæði innsíður og kápa

Næturgalinn - H C Andersen

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,220 kg
Ummál 17 × 1 × 24 cm
Blaðsíður:

39 +myndir

ISBN

9979760745

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Heitir á frummáli

Nattergalen

Útgefandi:

PP forlag

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2004

Hönnun:

Ole A. Thomsen (umbrot og kápuhönnun)

Teikningar

Þórarinn Leifsson (myndskreytti)

Íslensk þýðing

Böðvar Guðmundsson (endursagði)

Höfundur:

H.C. Andersen