Maj darling
Maj var sætasta stelpan í bekknum. Hún fékk alla strákana til að syngja „Oh, my darling“ með sérstakri áherslu og innlifun. Í þá daga sögn Elvis Presley „Heartbreak Hotel“ og stelpurnar bundu hárið í tagl og kenndu strákunum að rokka.
Sagan gerist árið örlagaríka er Maj flutti í bæinn og allt breyttist. Stundum eru Harry og Hasse ringlaðir, stundum öfundsjúkir hvor út í annan, en þeir eru bestu vinir hennar og í sumarleyfinu víkja flest önnur áhugamál en hjólreiðatúrar og strandferðir með Maj. Öllum stundum eyða þessir þrír vinir saman, allt þar til daginn sem óveðrið skellur á …
Þessi áhrifaríka og fallega verðlaunasaga eftir sænska höfundinn Mats Wahl verður ógleymanleg öllum sem lesa. (Heimild: Bakhluti bókarinnar)
Ástand: gott, bæði innsíður og kápa
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.