Læknirinn í eldhúsinu – Tími til að njóta
Hér er komin matreiðslubók sem bragð er að! Allir matgæðingar þekkja matarblogg Ragnars Freys og hér hefur hann búið til stóra, þykka og óhemju glæsilega bók með nýjum og freistandi uppskriftum. Þetta er bók fyrir þá sem vilja gera vel við sig. Eins og Ragnar segir: „Nú er tími til að njóta.“ Gerið svo vel! (Heimild: Bókatíðindi)
Bókin Læknirinn í eldhúsinu – Tími til að njóta eru 11 kaflar, þeir eru:
- Léttir réttir
- Indælis pasta, risotto og risastór paella
- Fiskur í sjó og vatni
- Fleygir fuglar og ófleygir
- Lambið ljúfa
- Hið safaríka naut
- Grísinn góði
- Pylsur, kjötvinnsla – charcuteric
- Himneskt meðlæti
- Heimilisleg brauð og bakstur
- Sætt á eftir
Ástand: gott








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.