Kular af degi
Aðferðir mínar eru úthugsaðar. Ég er kennari af guðs náð. Mín verður eflaust lengi minnst.
Þórsteina Þórsdóttir kennari hefur sannarlega hátt sjálfsmat. Hvorki nemendur hennar né samkennarar virðast hafa djúp áhrif á þessa stoltu einhleypu konu sem fer til Frakklands í fríum og les orðabækur sér til skemmtunar. En eftir að myndarlegi forfallakennarinn birtist, og uppgerðarsakleysi nemandanna hverfur eins og dögg fyrir sólu, hefst atburðarrás sem hún hefur enga stjórn á. Þórstein verður að grípa til sinna ráða, og þau reynast sannarlega eftirminnileg. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Kular af degi er þriðja skáldsaga Kristínar Marju Baldursdóttur
Verk þetta er 1.útgáfa
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.