Konungsbók
Ungur íslenskufræðingur heldur til náms í Danmörku og finnur þar fyrir landa sinn, gamlan prófessor. Sá býr yfir skelfilegu leyndarmáli sem tengist helsta dýrgrip íslensku þjóðarinnar, Konungsbók Eddukvæða. Leyndarmálið leiðir prófessorinn og lærisvein hans í mikla háskaför um þvera Evrópu þar sem mannslíf eru léttvæg fundin. Mögnuð og spennandi saga um hverju má fórna – og hverju verður að fórna – fyrir dýrustu gersemar kynslóðanna. Konungsbók er tíunda skáldsaga Arnaldar Indriðasonar, en bækur hans hafa nú selst í um það bil þremur milljónum eintaka um heim allan. (Heimild: Bókatíðindi)
Ástand: gott bæði innsíður og kápa
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.