Kaloríukvótinn
Borðaðu eins og þig lystir
S.M.A.R.T. er hnitmiðuð og skemmtileg aðferð sem kennir þér að hætta að berjast á móti líkamanum en fá hann þess í staðtil liðs við þig. Ef þú skilur starfsemi líkamans geturðu borðað eins og þig lystir og verið í þínu besta formi um leið. Þú þarft nefnilega að borða til að grennast! (Heimild: framhlið bókarinnar)
Hver er ástæðan fyrir því að rúmlega helmingur þeirra sem byrja líkamsrækt hætta innan þriggja mánaða?
Af hverju virðist líkaminn stundum hreinlega b erjast gegn því að grennast?
Sölvi Fannar Viðarsson hefur lagt stund á heilsuráðgjöf og einkaþjálfun fyrir einstaklinga og hópa árum saman og í þessari bók útskýrir hann fyrir lesendum að margt af því sem við gerum í þeim tilgangi að grennast og styrkja okkur er byggt á misskilningi. Höfundur hefur viðað að sér mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði og kortlagt hvaða aðferðir virka og hverjar ekki.
Hér er m.a. kynnt til sögunar S.M.A.R.T. – aðferðin sem kennir þér að hnitmiðaðan og skemmtilegan hátt að hætta að berjast á móti líkamanum en fá hann í staðinn til samstarfs við þig. Ef þú skilur líkamann geturðu borðað eins og þig lystir og verið í þínu besta formi um leið. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.