Íslandsleiðangur Stanleys 1789
Ferðabók
Íslandsleiðangur Stanleys 1789 var annar í röðinni enskra leiðangra hingað til lands og beint framhald af leiðangri Sir Joseph Banks 1772. Stanleyleiðangurinn kom til Íslands í kjölfar Móðuharðindanna, en engar aðrar lýsingar erlendra manna eru til frá þeim árum. Má af dagbókunum ráða margt um hagi og ástand þjóðarinnar og fylla þær verulega í eyðu þess tímabils.
Ferðabók þessi er prýdd um eitthundrað svart-hvítum teikningum, tuttugu og einni vatnslitamynd og tveimur olíumálverkum. Fæstar þessar mynda hafa birst á prenti áður og er að þei stórmikill menningarsögulegur fengur. Má með sanni segja að þær fylli bilið milli Ferðabókar Egerts og Bjarna og bóka þeirra Mackenzies og Gaimards. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Íslandsleiðangur Stanleys 1789 er skipt niður í sex kafla, þeir eru:
- Inngangur Stanleys úr Landsbókasafni 3886-88
- Stanleyleiðangurinn til Færeyja og Íslands eftir John F. West, greinargerð fyrir færeysku útgáfunni
- Formáli þýðanda, Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum
- Dagbók I.
- James Wright
- Formáli færeysku útgáfunnar
- Dagbók II.
- Isaac S. Benners
- Formáli færeysku útgáfunnar
- Dagbók III.
- John Blaine
- Formáli færeysku útgáfunnar
Ástand: vel með farin bæði innsíður og kápa.