Í verum – saga Theódórs Friðrikssonar
Theódór Friðriksson (1876-1948) rithöfundur var eitt af undrabörnum íslenskrar menningarsögu. Sjálfsævisaga hans Í verum kom út í tveim bindum árið 1941 og varð þegar í stað þekkt um allt land, lesin af ungum og gömlum, og dáð af öllum sem kunnu að meta vel sagða sögu á auðugu og hressilegu máli. Er þetta einstæð saga og klassísk heimild um lífskjör alþýðumanna í sjávarplássum og á afskekktum stöðum eins og norður í Fjörðum á seinni hluta 19. aldar og í byrjun 20. aldar.
Bókin Í verum – saga Theódórs Friðrikssonar, I. bindi skiptist í 4 þætti, þeir eru:
- Fyrsti þáttur: Benskuárin í Flatey
- Annar þáttur: Í fjörðum
- Þriðji þáttur: Á Þverá og Bárðartjörn
- Fjórði þáttur: Á hrakningi í Skagafirði
Ástand: gott. Verkið eru fjórir þættir en með 15 köflum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.