Hyldýpi
Fjórir ungir drengir róa í leyfisleysi út á stórt stöðuvatn. Einn þeirra fellur útbyrðis og er nærri því drukknaður. Ofan í vatninu birtist nakin stelpa, bjarthærð og grönn, og réttir honum svartan hlut. Sjálfur er drengurinn með myrkur í maganum, myrkur sem þrífst á þögn og ótta og mun einn daginn toga hann aftur til sín.
Tíu árum síðar gerast dularfullir atburðir: Tvö ungmenni hverfa sama dag, piltur og stúlka. Pilturinn finnst nærri dauða en lífi en ekkert spyrst til stúlkunnar. Hann ákveður að leita hennar en hversdagsleikinn breytist í botnlaust hyldýpi og leitin verður fljótt að martröð sem engan enda ætlar að taka … (heimild: bakhlið bókarinnar)
Hyldýpi er níunda skáldsaga Stefáns Mána.
Ástand: góðar innsíður og góð kápa.