Hugmyndir sem breyttu heiminum

Í bókinni Hugmyndir sem breyttu heiminum, sem er myndskreytt á áhrifaríkan hátt, fjallar hinn virti rithöfundur og fræðimaður Felipe Fernández-Armesto um 175 lykilhugmyndir sem hafa breytt heiminum frá árdögum mannkyns til okkar tíma.

Hugmyndir manna um eilíft líf, heilagt stríð, brjálaða vísindamanninn og hjónaband byggt á ást eru meðal þeirra sem teknar eru til skoðunar. Í bókinni kemur fram fersk og sannfærandi sýn á ýmsa grundvallarþætti mannlífsins – allt frá dýpstu rökum tilverunnar til hversdagslegustu fyrirbæra.

Felipe Fernández-Armesto er Spánverji að hálfu og Englendingur að hálfu. Hann er búsettur á Englandi, starfar sem háskólaprófessor og kennir sögu og landafræði í Oxford og London. Þá hefur hann starfað sem sendikennari við ýmsa háskóla í Evrópu og Bandaríkjunum, ritað blaðagreinar í ýmis blöð og tímarit, flutt útvarpserindi um margvísleg efni og tekið þátt í gerð handrita fyrir sjónvarpsmyndaflokka sem byggðir eru á bókum hans. (Heimild: MBL, 4. feb. 2005)

Bókin Hugmyndir sem breyttu heiminum er skipt niður í 7 kafla, þeir eru:

  • Hugur veiðimannsins 30.000-10.000 f.Kr.
  • Upp úr leðjunni 10.000-1.000 f.Kr.
  • Svo mælti Zaraþústra 1000 f.Kr.-0 e.Kr
  • Trúarhugmyndir 0-1400 e.Kr
  • Aftur til framtíðar 1400-1800
  • Framfarablekkingin 1800-1900
  • Öld óvissunnar 1900-2000
  • Atriðaorðaskrá

Ástand: gott en kápan þreytt, búið að nafnamerkja á saurblað

Hugmyndir sem breyttu heiminum

kr.1.200

Ekki til á lager

Vörunúmer: 8501470 Flokkar: , Merkimiðar: ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,4 kg
Ummál 19 × 3 × 25 cm
Blaðsíður:

400 +myndir +Atriðisorðaskrá: bls. 392-398

ISBN

9979217960

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi og með hlífðarkápu

Heitir á frummáli

Ideas that changed the world

Útgefandi:

Almenna bókafélagið

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2004

Hönnun:

Loftur Ólafur Leifsson (kápuhönnun), S. Jóna Hilmarsdóttir (umbrot)

Íslensk þýðing

Róbert Jack

Höfundur:

Felipe Fernándes-Armesto

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Hugmyndir sem breyttu heiminum – Uppseld”