Gamla góða Kaupmannahöfn
Guðlaugur Arason hefur búið í Kaupmannahöfn undanfarin ár og meðal annars leitt fróðleksfúsa íslenska ferðalanga um götur okkar fornu höfuðborgar. Vinsældir þessara gönguferða sem hefjast á tröppum Ráðhússins hafa farið vaxandi með ári hverju, enda er Guðlaugur manna fróðastur um sögu Kaupmannahafnar. Hér greinir hann frá 180 götum, flestum innan gömlu borgarveggjanna, og segir óborganlegar sögur af fólki, byggingum og aðstæðum, allt frá því menn héldu búfénað í híbýlum sínum þar til lífsgæðakapphlaupið tók völdin. Ekki er síst eftirsöknarvert að hlusta á frásagnir Guðlaugs af þekktum Íslendingum og dönsku hefðarfólki sem setti svip á samtíð sína og skríngisögur sem vekja hlátur eða jafvel hroll. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Gamla góða Kaupmannahöfn eru 4 kaflar fyrir utan viðauka, þeir eru:
- Formáli
- Götur og ýmis kennileiti
- Bústaðir nokkurra Íslendinga
- Konungar Danmerkur
- Nokkur gagnleg heimilisföng
- Helstu heimildir
- Atriða- og Nafnaskrá
Ástand: gott eintak








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.