Fíasól á flandri
Fíasól er átta ára gamall ferðalangur og óskabarn sem lendir í einhverju fjörugu á hverjum degi. Hér útvegar hún fjölskyldunni einkaþjón, kallar saman nokkra viðskiptarisa til styrktar góðu málefni, hittir næstum því forsetann og bregður sér í ævintýraferð til útlanda. Hressilegar sögur Kristínar Helgu Gunnarsdóttur og bráðfyndnar myndir Halldórs Baldurssonar gera Fíusól að eftirlæti íslenskra bókaorma ár eftir ár.
Ástand: innsíður góðar, kápa góð.