Elliðaárdalur land og saga
Elliðaárdalur nýtur borgarverndar vegna hins sérstaka náttúrufars sem þar er að finna og útivistarmöguleika. Einnig eru í dalnum merkilegir sögustaðir og friðlýstar minjar. Dalurinn er viðáttumikið svæði og fjölbreytt að sama skapi.
Á 19. Öld var algengt að Reykvíkingar færu á frídögum í lystireisur austur í Elliðaárdal. Þegar bílaöld gekk í garð, eftir aldamótin 1900, var stefnan tekin á fjarlægari staði. Því var það að í nokkra áratugi sáu flestir Elliðaárdal aðeins í svipleiftri á leið sinni yfir Elliðaárbrýrnar. Þetta skeið er nú einnig liðið undir lok. Fjöldi manna kemur nú í dalinn dag hvern í margvíslegum tilgangi, ýmist á eigin vegum eða sem hluti af hóp.
Í þessari bók er fjallað á aðgengilegan hátt um flest svið í náttúru og sögu Elliðaárdals allt frá elstu berglögum, sem er tveggja milljóna ára, til nútímans.
Ástand: gott, innsíður og bókbandsefni gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.