Eldað og bakað í ofninum heima

Góður matur – gott líf

Eldað og bakað í ofninum heima er einstök bók fyrir alla sem njóta þess að útbúa góðan mat fyrir fjölskyldu og vini. Í henni eru á annað hundrað ótrúlegagirnilegra uppskrifta að fjölbreyttum réttum sem elda má í ofni, allt frá ljúffengum heimilismat að spennandi veisluföngum, ásamt brauði, freistandi kökum og öðru góðgæti.

Áhersla er lögð á að matreiða frá grunni og nota gott og aðgengilegt hráefni. Fjölskyldan getur sameinast um að rækta, baka og elda, öllum til gagns og ánægju. Hér má finna margvíslegan fróðleik um mat og matargerð auk þess sem mismunandi bakstursaðferðum er lýst í máli og myndum, skref fyrir skref. Bókina prýðir mikill fjöldi stórglæsilegra ljósmynda.

Matgæðingarnir Gísli Egill Hrafnsson og Inga Elsa Bergþórsdóttir hafa áður sent frá sér nýstárlegar bækur um mat. Meðal þeirra er Góður matur – gott líf í takt við árstíðirnar sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2011. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Eldað og bakað í ofninum heima er skipt niður í 15 kafla, þeir eru:

  • Brauðbakstur
  • Sætur gerbakstur
  • Fatbrauð og pítsur
  • Allskonar nasl
  • Aðalréttir
  • Meðlæti og annað gott
  • Bakaðir eftirréttir
  • Bökur
  • Formkökur, skúffukökur og smákökur
  • Marenskökur
  • Ostakökur
  • Múffur
  • Tertur
  • Uppskriftirnar frá a til ö

Ástand: gott

Eldað og bakað í ofninum heima - góður matur gott líf - Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson - Vaka Helgafell

kr.1.400

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 1,1 kg
Ummál 21 × 3 × 27 cm
Blaðsíður:

247 +myndir +uppskriftirnar frá a til ö: bls. 245-246

ISBN

9789979221975

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd álímingi

Útgefandi:

Vaka Helgafell

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2012

Ljósmyndir:

Gísli Egill Hrafnsson

Höfundur:

Gísli Egill Hrafnsson, Inga Elsa Bergþórsdóttir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Eldað og bakað í ofninum heima”