Djúpar rætur – hugverk þingeyskra kvenna

Djúpar rætur – hugverk þingeyskra kvenna  eru hugverk eftir 180 þingeyskar konur. Árið 2001 voru liðin 50 ár frá því að Kvenfélagasamband Suður-Þingeyinga endurreisti Menningarsjóð þingeyskra kvenna. Til að minnast þessara tímamóta á sem veglegastan hátt ákvað stjórn sjóðsins að gefa út bók með hugverkum eftir þingeyskar konur.

Í verkinu sem fékk nafnið Djúpar rætur eru sögur, ljóð og lög eftir 180 þingeyskar konur. Kveðskapurinn er frá því um miðja átjándu öld og fram til ársins 2002.

Hér er um að ræða margbreytilegt efni, dýrt kveðin ljóð, frásagnir og allt þar á milli – margt af því tærasta og hugljúfasta sem ort hefur verið á íslenska tungu. Bókin gefur dýrmæta sýn á tungutak kvenna, tungumálið sem börnin innbyrða með móðurmjólkinni og á hvað drýgstan þátt í að skapa grunninn að íslensku máli.

Bókin Djúpar rætur – hugverk þingeyskra kvenna er skipt niður í höfunum í stafrófsröð

Ástand: ný (ennþá í plastinu)

kr.2.850

8 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,906 kg
Ummál 24,2 × 17,2 × 2,5 cm
Blaðsíður:

351

ISBN

9789979931546

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Pjaxi, í dag sér Ritskinna um sölu og dreifingu

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2002

Höfundur:

179 Þingeyskar konur

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Djúpar rætur – hugverk þingeyskra kvenna”