Blómskrúð inni og úti
Sumarið minnir okkur á plöntur í blóma, litskrúðug blóm og unaðslega angan. Fallegar plöntur og sumarið blíða eru eitt og hið sama í huga margra. Þess vegna reyna blómaunnendur að hafa sem fjölbreytilegast blómskrúð í kringum sig, ekki hvað síst á sumrin.
Í þessari bók Vöku og Blómaklubbsins er einmitt fjallað um plöntur sem blómgast helst á sumrin. Þrátt fyrir að við búum við nyrstu höf þá geta flestar plönturnar í bókinni dafnað utandyra hérlendis ef þær fá ofurlítið skjól. Þær sem eiga erfitt með það njóta sín vel í blómastofu eða á verönd, en það er jafnan tekið fram í umfjölluniini um hverja plöntu.
Þetta er handhæg og falleg bók fyrir alla þá sem unna blómarækt, hvort sem er innan dyra eða utan. (heimild: bakhluti bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.