Blóm og servíettur
Það er frábær tilfinning að geta boðið gestum til sætis við fallega dúkað borð með litríkum blómum og tauservíettum. Þá er veisla!
Hér er að finna ýmsar hugmyndir að blómaskreytinum og servíettubrotum sem henta m.a. fyrir allar árstíðir og hátíðisdaga. Ýtarlegar leiðbeiningar og einfaldar skýringarmyndir tryggja góðan árangur.
Þá er bara að byrja því það er bæði létt og skemmtilegt að gera blómaskreytingar. Og eins og höfundur bókarinnar segir: „Leyfðu þér að njóta þeirrar gleði sem blóm veita – það lengir lífið!“. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Blóm og servíettur er skipt niður í sex kafla og undirkafla, þeir eru:
- Segðu það með blómum!
- Auðveldar og fljótlegar skreytingar
- Nýstárlegar borðskreytingar
- Sumarblóm
- Blóm á öllum árstímum
- Ýmis fróðleikur
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.