Blóð og gull
200 hundruð þúsund stolinna gulldala lá undir sjö faðma vatni í Matagorda-flóa. Morgan Kane hafði afhent lögreglustjörnu sína og hann vissi ekkert um ránið, fyrr en einn þjófanna kom til að sækja fenginn … og hin fagra Belle Germain leigði Morgan til að gera það líka. Hún var ekkja annars þjófsins, en lík hans rak rotið á land eftir óveðursnóttina, þegar gullið hvarf úr „Vestanvindi“.
Það kostaði meira blóð og fleir lík að ná kistunni úr greipum Ægis, og loks stóð Kane með fjársjóðinn í höndunum … (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.