Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar I-III bindi
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar (1860-1948) eftir Þórberg Þórðarson er ein helsta og frægasta ævisaga íslenskra bókmennta og meðal höfuðrita Þórbergs. Í þessari bók setur hann sig í spor skrásetjarans og lifir sig inn í viðburðaríka ævi hins aldna prófasts, sem Þórbergur kallaði „síðasta fulltrúa íslenskrar frásagnarsnilli“.
Matthías Johannesssen kallar bókina kraftaverk og segir : „Flestir munu vera sammála um að ævisagan sé einstakt rit í íslenzkum bókmenntum og eiga vart sinn líka meðal erlendra ritverka”
Bókin Ævisaga Árna Prófasts Þórarinssonar I-III bindi, I. bindi eru tvær bækur samtals 79 kaflar, II. bindi eru tvær bækur samtals 68 kaflar , III. bindi eru tvær bækur samtals 81 kaflar, þeir eru:
I. bindi
- Fagurt mannlíf
- Í sálarháska
II. bindi
- Hjá vondu fólki
- Á Snæfellsnesi
III. bindi
- Með eilífðarverum
- Að ævilokum
Ástand: gott – verk þetta er án lausa kápuna og hefur verið bundið inn uppá nýtt.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.