Á byrjunarreit

Þessi staka setning berst leyniþjónustu Bandaríkjanna frá írönskum njósnara í Hamborg árið 1996 en meira er ekki vitað. Ekki hver Bandaríkjamaðurinn er. Ekki fyrir hvað hann vill fá peningana eða frá hverjum.

Jack Reacher er nýkominn úr leyniför til Evrópu sem gekk svo vel að honum er veitt orða fyrir sérstaklega lofsverða breytni í þágu lands og þjóðar. Síðan er hann sendur í endurmenntun. Í bekknum eru bara tveir aðrir nemendur, annar frá FBI og hinn frá CIA. Og verkefnið? Að finna Ameríkanann og það sem hann er að selja.

Í Á byrjunarreit rifjar Reacher upp gamla hermannatakta, með sinn trygga liðþjálfa, Frances Neagley, sér við hlið. Sögusviðið er nýsameinað Þýskaland að kalda stríðinu afloknu, fullt af bandarískum hermönnum að aðlagast nýrri heimsmynd og heimamönnum með stóra drauma og strangar reglur. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu

Á byrjunarreit - Lee Child - kilja

kr.250

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,420 kg
Ummál 13 × 3 × 20 cm
Blaðsíður:

416

ISBN

9789935290281

Kápugerð:

Kilja

Heitir á frummáli

Night school

Útgefandi:

JPV útgáfa

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2020

Hönnun:

Stephen Mulcahey (kápuhönnun), Guðmundur Þorsteinsson (umbrot)

Íslensk þýðing

Bjarni Gunnarsson

Höfundur:

Lee Child

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Á byrjunarreit – Lee Child – Kilja”