10.000 dollarar fyrir Jesse Rawlings
Fréttin frá Arizona barst til Leavenworth-virkis á mettíma: fjögur morð voru framin í smábænum Mesa. Kona verðandi landstjóra fannst nakin í rúminu. Hún hafði verið skotin í hjartastað. Fyrir utan fannst mexíkanskur elskhugi hennar myrtur. Lögreglustjórinn og aðstoðarmaður hans fundust látnir í fangelsinu. Morðinginn var flúinn. Hann hét: Jesse Rawlings.
Tíu þúsund dollarar voru lagði til höfuðs ljóshærða bófans og hættulegustu mannaveiðarar Vestursins rifust eins og hrægammar um bráðina. Einn maður átti þó að fara að lögum – US Marshal Morgan Kane. Kane var illur og hefnigjarn, þegar hann rakti slóð Rawlings upp í mexíkönsku fjöllin – mannaveiðari, sem fremur vildi drepa bráðina en taka hana lifandi … (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.