Skógardýrið
Ævintýrið um skógardýrið Húgó, sem kemur til Danmerkur í bananapoka, var upphaflega framhaldssaga í útvarpi. Svo varð það gefið út á bók, sem margir lásu. Það tók fjögur ár að fullgera teiknimyndina um skógardýrið, og í henni eru 75.000 teikningar. Aukið hefur verið við söguna og nýjum skrautlegum og hættulegum persónum bætt við: þrjótnum Ísabellu og Konráð, sem vilja láta Húgó leika í stórmyndinni Fríðu og gæludýrið, og hinum litla og röska tófuyrðlingi Rínu, sme verður besti vinur Húgó og hjálpar honum að komast heill á húfi úr hættum malbiksfrumskógarins. Þetta er nýja sagan um skógardýrið með myndum og söngtextum úr kvikmyndinni. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, innsíður góðar en kápan þreytt.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.