Lífsgleði III
Viðtöl og frásagnir
Í bók þessari eru frásagnir sex Íslendinga, sem líta um öxl og rifja upp liðnar stundir, slá á alvarlega strengi, en leika þó einnig á mjög léttum nótum.
Hvernig var bernska höfunda í Bolungavík, Reykjavík eða á Austfjörðum? Hvernig var uppeldi, menntun og tómstundir í landinu fram að síðari heimsstyrjöld?
Einn þessara viðmælenda, Helgi Sæmundsson ritstjóri, kveður þó við nokkuð annan tón þegar hann fjallar um stjórnmál og dægurmál á Íslandi og virðir fyrir sér ástand og horfur. Hvers vegna hætti hann afskiptum af stjórnmálum
Hér er hvorki verið að leita svara við undramætti íslenskra grasa, finna allsherjarlausn í stjórnmálum né leysa vandamál trúar og sorgar eða benda á eina og óbrotna leið til lífshamingju. Höfundar rifja aðeins upp þætti í lífsferli sínum sem eru þeim ofarlegar í huga og eru sannarlega forvitnilegir og mjög áhugaverðir. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Lífgleði III, viðtöl og frásagnir eru 6 kaflar, þeir eru:
- Áslaug María Friðriksdóttir
- „Það er bjart yfir láði og legi“
- Ásta Erlingsdóttir
- Máttur grasanna og komandi kynslóðir
- Guðmunda Elíasdóttir
- Leifturmyndir
- Helgi Seljan
- Að eiga sér innri gleði
- Helgi Sæmundsson
- Einræður um stjórnmál
- Þórir Kr. Þórðarson
- „Það er nútíðin sem öllu máli skiptir“ Árin mín fyrstu fram á sjöunda áratuginn
Ástand: gott, innsíður góðar
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.