Gæfuspor – gildin í lífinu
Í Gæfusporum fjallar Gunnar Hersveinn um mannkosti og tilfinningar, stríð og frið og hamingju og rósemd af hugkvæmni og varpar oft óvæntu ljósi á rótgróin hugtök. Markmið bókar hans er m.a. að sýna hversu mikilvægt er að rækta tilfinningar sínar, það er forsenda fyrir velferð hverrar persónu og árangri í lífi og starfi. Fjallað er á skýran og greinilegan hátt um tæplega 50 hugtök sem brenna á fólki á lífsleiðinni. Markmiðið er að tendra leiðarljós og brýna lesandann til að leita svara við lífsgátunum upp á eigin spýtur. Gunnar Hersveinn hefur getið sér gott orðspor fyrir vandaða umfjöllun um gildin í lífinu. Hann skrifaði vinsæla pistla í Morgunblaðið um árabil. (Heimild: Bókatíðindi)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.