Kyrrþey
Í fórum látins manns finnur ekkjan lúna skammbyssu sem hún hefur aldrei séð og fer með hana til lögreglunnar. Við rannsókn kemur í ljós að byssan er morðvopn, með henni var maður skotinn til bana í Múlahverfi fyrir mörgum áratugum og málið upplýstist aldrei. Forvitnin grípur Konráð, fyrrverandi lögreglumann, vegna sams konar byssu sem faðir hans átti og leiðir hann á vit löngu liðinna atburða og tengsla sem fáir vissu af. Og úr djúpi tímans birtist fleira en hann óraði fyrir. (Heimildir: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott







