Píkutorfan
Hvernig lífi lifa ungar konur í samfélagi nútímans? Hópur ungra femínista í Svíþjóð skrifaði að gefnu tilefni þessa bók sem vakið hefur gríðarlegar umræður á Norðurlöndum. Hér er lýst stöðu ungra kvenna í hinum mótsagnakenndu samfélögum Vesturlanda þar sem kynlíf er í senn úthrópað og upphafið, líkami konunnar notaður til að selja allt frá sjampói til skrúfjárna, launamisrétti viðgengst í stórum stíl og flestir virðast sannfærðir um að til sé sérstakt „eðli“ konunnar sem öllum beri að fylgja. Bók allra þeirra sem láta sig varða frelsi og mannréttindi kvenna. (Heimild: Bókatíðindi)
Bókin Píkutorfan eru 19 kaflar, þeir eru:
- B-hliðar, bootlegs og bestu smellir Bríetar: um Bríeti, félag ungra femínista
- Við fengum að vita ýmislegt um kynlíf: um kynhegðun
- Mín eilífa fylgismær: um átröskun
- Ekki alveg eins og aðrar mömmur: um að eiga femíniska mömmu
- Að vera á sinni eigin eyju fullri af svölum gellum: um fyrirmyndir
- Öskubuska er ömurleg: um sjálfstæði í stað undirgefni
- Geturðu verið stelpa og samt verið skemmtileg: um húmor
- Það sem enginn þorir að tala um: um ofbeldi gegn konum og börnum
- Leyfið mér að vera ég: um manneskju
- Tyrkneska stelpan: um að vera sett á bás
- Stelpur verða ekki fótboltahetjur á Ítalíu: um íþróttir
- Það eru ekki til neinar druslur!: um að fá á sig stimpil
- Takk fyrir Guð, að ég er lesbía: um samkynhneigð
- Þeir kalla okkur hórur: um efnafræðitíma í maí 1997
- Mínir svokölluðu vinir: um vinkonur
- Frekar pönkari en ísprinsessa: um tónlist
- Tipsextra-ball í höllinni 5 – 0: um að vera sjálfstæð
- Með smokka og kirsuberjatóbak á leið til Kaupmannahafnar: um þrá
Ástand: innsíður góðar en kápan í góðu standi.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.