Öldin sextánda II. bindi 1551-1600
Minnisverð tíðindi
Þetta síðara bindi aldarinnar sextándu tekur yfir seinni helming aldarinnar þegar hinn lútherski siður er smám saman að festa sig í sessi. Líkt og í fyrri „öldum“ eru atburðir raktir í lifandi og aðgengilegu formi fréttablaðs og bókin er prýdd fjölda mynda, ýmsum harla fáséðum. „Aldirnar“ eru nú orðnar ellefu bindi og gera skil sögu þjóðarinnar í samfellt 470 ár.
Í bókunum eru hátt á fjórða þúsund myndir og mun í engu öðru ritverki að finna slíkt safn íslenskra mynda. “Aldirnar” eru lifandi saga liðinna atburða í máli og myndum. Þær eru fullar af fróðleik og jafnframt svo skemmtilegt lestrarefni að naumast hafa komið út á íslensku bækur sem njóta jafnalmennra vinsælda fólks á öllum aldri. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Öldin sextánda II. bindi 1551-1600 er skipt niður eftir tímatali
Ástand: Frábært ennþá í upphaflegu plastinu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.