Víetnömsk-íslensk / Íslensk-víetnömsk orðabók
Bókin kemur út í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá því að Víetnamar settust fyrst að hér á landi. Þess hefur verið gætt að hún nýtist bæði við nám og í daglegum samskiptum. Hverju orði fylgja málfræðilegar upplýsingar og í sumum tilvikum eru gefin dæmi um notkun þeirra. Til að auka á notagildi bókarinnar fylgja leiðbeiningar um íslenskan framburð með hliðsjón af víetnömskum framburði, almennar útskýringar á fallbeygingum og listi yfir fallbeygingar nafnorða, lýsingarorða og sagnorða. (Heimild: Bókatíðindi)
Bókin Víetnömsk-íslensk/Íslensk-víetnömsk orðabók er skipt í 4 kafla með undirköflum, þeir eru:
- Gagnlegar upplýsingar
- Víetnömsk-íslensk orðabók
- Íslensk-víetnömsk orðabók
- Málfræði
Ástand: gott, mjög vel með farin