Veiðimennirnir
Deild Q
Árið 1987 fundust tvö systkini myrt á hrottafenginn hátt í sumarbústað á Sjálandi. Grunur beindist að hópi ungmenna úr efnuðum fjölskyldum en sannanir skorti og enginn var sakfelldur. Níu árum seinna játaði þó einn pilturinn á sig morðin og málið virtist leyst.
Dag nokkurn árið 2007 liggja gömlu málsskjölin á borði Carls Mørck, forstöðumanns Deildar Q hjá dönsku lögreglunni. Hann áttar sig fljótlega á að þar er ekki allt með felldu og hefur rannsókn ásamt Assadi aðstoðarmanni sínum. Málið teygir sig frá aumri útigangskonu í miðborg Kaupmannahafnar til þriggja af auðugustu og valdamestu mönnum landsins. Og auðmennirnir eru líka á hælum konunnar því að hún býr yfir vitneskju sem getur komið þeim á kaldan klaka. Veiðarnar eru hafnar – hver hremmir bráðina? (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Fyrsta bókin um Carl Mørck og Deild Q, Konan í búrinu, kom út á íslensku árið 2011
Ástand: gott, laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.