Útkall fallið fram af fjalli

Bók nr. 5

Fjórir áhrifamiklir atburðir eru efni þessarar bókar þar sem spenna og tilfinningaleg átök einkenna hinnar sannsögulegu frásagnir. Söguhetjur segja frá – þeir sem í hremmingunum lentu, björgunarfólk og aðstandendur. Í sögunum um Bryndísi Brandsdóttur og vélsleðamennina frá Dalvík sem týndust á Nýjabæjarfjalli fyrr á árinu koma fram nýjar ghliðar sem aldrei hafa komið fyrir almenningsjónir áður – m.a. þegar aðstandenur voru farnir að fela sig fyrir lögreglunni sem þeir töldu boðbera válegra tíðinda. Hallgrímur Magnússon lýsir sinni verstu lífsreynslu þegar hann horfði á eftir Magnúsi Hallgrímssyni, föður sínum, og Leifi Jónssyni lækni hverfa út í sortann fram af Grímsfjalli (200 metrar) – ótrúlegum atburði sem aldrei var sagt frá í fjölmiðlum á sínum tíma. Einnig lýsa fimm hraustir Eyjamenn því þegar þeir horfðust í augu við dauðann. Þessar frásagnir láta engan ósnortinn. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Fjórir áhrifamiklir atburðir:

Bryndís Brandsdóttir hrapar 200 metra fram af Grímsfjalli í jeppa 1998
Everestfarinn Hallgrímur Magnússon kemur föður sínum og félaga hans til bjargar á sama stað tæpum áratug áður.
Fimm Vestmannaeyingar voru hársbreidd frá drukknun í öldunum við Bjarnarey
„Týndir Dalvíkingar“ lýsa atburðum í snjóhúsi á Nýjabæjarfjalli 1998.

Bókin Útkall fallið fram af fjalli, er skipt niður í 5 kafla, þeir eru:

  • Nagandi óvissan
  • Í lausu lofti
  • Fyrr má nú rota
  • Hringdu í tíu tuttugu og einn!
  • Engir kóladrengir

Ástand: gott

Útkall fallið fram af fjalli, bók 5 - Óttar Sveinsson

kr.1.000

Ekki til á lager

Vörunúmer: 8501815 Flokkur: Merkimiðar: , ,

SKU: 8501815Flokkur: Merkimiðar: , ,

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,720 kg
Ummál 16 × 3 × 24 cm
Blaðsíður:

256 +myndir +kort +nafnaskrá: bls. 251-255

ISBN

9979877200

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Íslenska bókaútgáfan

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

1998

Höfundur:

Óttar Sveinsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Útkall fallið fram af fjalli, bók 5 – Uppseld”