Stúdíó sex
Annika Bengtzon kemst í sumarafleysingar á Kvöldblaðinu og gerir sér vonir um fastráðningu. Hún fær ekki langan tíma til að venjast lífinu á blaðinu því lík af ungri stúlku sem hefur verið myrt finnst í kirkjugarði í borginni. Fórnarlambið er nektardansmær og grunur fellur á ráðherra í ríkisstjórninni. Annika Bengtzon fer að rýna í málið og veit að þetta er fréttin sem mun koma henni á kortið hjá blaðinu. Þræðirnir sem liggja að baki morðinu reynast flóknir og sá ógnvænlegi og ofbeldisfulli heimur kynlífsiðnaðarins sem Annika kynnist við rannsókn málsins hefur mikil áhrif á hana. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.