Skálmöld í Oklahoma
Billy Doolin og óaldaflokkur hans fór sem eldur í sinu yfir Oklahoma-fylki. Framferði þeirra einkenndist af hrottaskap og miskunnarlausu ofbeldi …
En þegar Doolin-klíkan myrti flokk lögreglumanna undir stjórn lögregluforingja frá alríkislögreglunni, með sprengjuárás í þorpinu Ingalls, var mælirinn fylltur. Sambandsstjórnin sendi þrjá af frægustu lögregluforingjum sínum á stúfana til að uppræta óaldaflokkinn.
Lögregluforingjarnir Hick Thomas og Bill Tilghman aðhylltust þá stefnu, að sjálfsagt væri að gefa útlögunum tækifæri til að gefast upp og leggja niður vopn. Og þeir leyndu ekki fyrirlitningu sinni á aðferðum þeim sem Morgan Kane beitti, en hann var þriðji lögregluforinginn sem sendur var á vettvang. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.