Liðin tíð
Jack Reacher er á leið frá Maine til Kaliforníu þegar hann kemur auga á skilti með nafninu Laconia – sem er bærinn í Nýja–Englandi þar sem faðir hans ólst upp. En þegar hann fer að grafast fyrir um fólkið sitt fær hann að vita að í þessum bæ hafi aldrei búið nokkur maður með ættarnafnið Reacher …
Á sama tíma er ungt par á ferðalagi frá Kanada til New York þar sem þau ætla að freista gæfunnar. Þegar bíllinn þeirra bilar finna þau mótel úti í auðninni, en þar er alls ekki allt eins og það á að vera.
Lee Child er einn vinsælasti spennusagnahöfundur heims og tryggir aðdáendur fá aldrei nóg af harðjaxlinum Jack Reacher og ævintýrum hans. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.