Rist í mar og mold
Ævisaga Ragnars Þorsteinssonar skipstjóra, bónda og rithöfundar
Æviminningar Ragnars Þorsteinssonar skipstjóra, bónda og rithöfundar (f. 1908) eru sannarlega þess verðar að eftir þeim sé tekið. Þær eru glöggar aldarspegill og greina frá harðri lífsbaráttu og óvenjulegum kjarki. Átta ára gamall tekur Ragnar að vinna fyrir sér hjá vandalausum. Sextán ára er hann orðinnn erfiðismaður á Ísafirði, þar sem hann tekur þátt í að sjá stórum systkinahópi farborða. Senn hefst viðburðaríkur sjómennsku- og skipstjórnarferill, sem ekki linnir fyrr en hann árið 1943 kaupir jörðina Höfðabrekku í Mýrdal og lætur gamlan draum um að yrkja jörðina rætast. Þá hefst nýtt tímabil, sem lýsir linnulausri baráttu við óblíð náttúruöfl, ekki síst stórfljót og sanda Suðurlands, en höfundur var um árabil formaður björgunarsveitar SVFÍ í Vík. Sextugur bregður hann búi og tekur að njóta lífsins í ríkum mæli. Hann kvænist æskuást sinni, hefur eigin útgerð og ferðast til 40 landa. Jafnframt gefst honum nú meiri tíma til ritstarfa, en hann er höfundur fjölda bók, skáldsagna, ljóða- og barnabóka. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Bókin Rist í mar og mold er ekki með efnisyfirlit
Ástand: gott, ekkert krot né nafnamerking
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.