Réttindi og skyldur á vinnumarkaði
Réttindamál launafólks eru sífellt til umfjöllunar og verða óðum stærri þáttur í umræðunni um kjör launafólks. Á umliðnum árum hafa kjarabætur oft fremur falist í félagslegum umbótum en beinum launahækkunum. Með auknum félagslegum réttindum fjölgar einnig þeim álitaefnum sem upp koma í samskiptum á vinnumarkaði. Knýjanid þörf hefur verið á upplýsingaefni um réttindi og skyldur á þessum vettvangi og einkum hefur skoertur á þessu efni verið bagalegur fytrir starfsfólk og stéttarfélaga. Þessi bók er ætlað að bæta hér úr.
Bókin Réttindi og skyldur á vinnumarkaði nýtist öllum þeim sem fást við að túlka lög og kjarasamninga á vinnumarkaði. Bókin skiptist í þrjá hluta, upphaf ráðningar, réttindi og skyldur starfsmanna og lok ráðningar. Kaflarnir eru átján. Vísað er í kjarasaminga, lög og dóma, oft undirréttaredóma, sem ekki hafa verið birtir, og þeir reifaðir í texta. Meðal annars eru ítarleg atriðisorðaskrá og skrá yfir tilvitnaða dóma í bókinni.
Ástand: innsíður góðar
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.