Orð í tíma töluð – íslensk tilvitnanabók
Það hefur ávallt þótt mikils virði að koma vel fyrir sig orði. Að kunna að beita hnyttnum samlíkingum eða skörpum tilvitnunum og fleygum orðum, enda býr í þeim meitluð hugsun og djúpur skilningur sem iðulega segja meira en langar orðræður. Því er óhætt að segja að þekking á fleygum orðum sé gulls ígildi.
Í bókinni Orð í tíma töluð – Íslensk tilvitnanabók hefur Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, tekið saman umfangsmesta safn tilvitnana og fleygra orða sem komið hefur út hér á landi. Þar er að finna um 8000 uppflettiorð sem geyma margt sem snjallast hefur verið sagt á Íslandi í þúsund ár, en einnig er í bókinni mikill fjöldi erlendra tilvitnana.
Efnisyfirlit: Ekkert efnisyfirlit bók er röðuð eftir stafrófsröð
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.