Óaldarflokkurinn
Í þessari bók lendir Morgan Kane í einherjum mestu mannraunum ævi sinnar og það í umhverfi og aðstæðum sem hann hata – nístandi kulda og vetrarríki.
Í upphafi bókarinnar er hann – undir dulnefninu Charlie Carter – staddur í smábænum Casper, Wyoming. Það verkefni sem honum hefur verið falið, er fremur óljóst, en yfirvöld grunar að eitthvað mikið sé í aðsigi meðal helstu bófa Villta vestursins. Og mikið rétt, það er eitthvað stórt á döfinni. Butch Cassidy, Sundance Kid, Gerge Curry, Kid Curry og allir hinir eru í þann mund að slá sér saman í eitt allsherjar bandalag – „Trainrobbers Syndicate.“
Leikurinn færist um síðir suður á bóginn, í brennandi sólarhita Utah. Í gömlum virkisbæ, Castle Gate, situr einn helsti andstæðingur og hatursmaður Morgan Kane og heldur bænum nánast herskildi. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.