Nói bátasmiður

Erlingur Davíðsson hefur skráð endurminningar Kristjáns Nóa Kristjánssonar, sem í daglegu tali gengur undir nafninu Nói bátasmiður. Hann fæddist í Innri-Lambadal við Dýrafjörð 30. nóvember árið 1898, en síðari hluta ævinnar hefur hann átt heima á Akureyri og þar hefur hann smíðað bátana sína landskunnu allt til sumarsins 1977.

Nói bátasmiður hefur smíðað fleytur af mörgum stærðum og gerðum, allt frá jullum og skektum, árabátum, trillum og mótorbátum, upp í 140 tonna fiskiskip. Þessir bátar og skip bera höfundi sínum það vitni, að hann sé dverghagur smiður, og að honum sé sú gáfa gefin við smíði báta, sem hvorki verður að fullu kennd né heldur lærð, en listagyðjan ein getur eftirlætisbörnum sínum í vöggugjöf.

Nói bátasmiður er mjög sérstakur persónuleiki sem gaman er að kynnast og hefur Erlingi Davíðssyni tekist einar vel að skrásetja endurminningar hans og gera þær ljóslifandi fyrir hugskotssjónum lesanda. Hér segir Nói bátasmiður frá ýmsum atvikukm liðinnar ævi, hefir  sérstök orðatiltæki á hraðbergi og kalla ekki allt ömmu sína. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Bókin Nói bátasmiður eru 17 kaflar, þeir eru:

  • Nói bátasmiður
  • Tökubarn á Kjaransstöðum
  • Vorvertíð á Fjallaskaga
  • Byssukærir drengir
  • Snemma beygist krókurinn
  • Kynlegir kvistir og heimasætan á Dröngum
  • Refurinn og rjúpan
  • Sendur til sjós
  • Það var ekki alltaf sól og sumar við Dýrafjörð
  • Smíðanám á Þingeyri
  • Þegar við fórum að gera út
  • Nýjar slóðir
  • Til Norðurlands og svo í siglingar
  • Ævistarfið hefst
  • Gylfi og Fagriklettur
  • Nýsköpunarbátar
  • Óvænt atvik og eftirköst

Ástand bókar: gott en lausakápa smá þreytt

Nói bátasmiður - endurminningar Kristjáns Nóa Kristjánssonar

kr.1.400

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,490 kg
Ummál 16 × 3 × 24 cm
Blaðsíður:

182 +myndir

ISBN

Ekkert

Kápugerð:

Harðband (innbundin bók) klædd bókbandsefni með hlífðarkápu

Útgefandi:

Bókaforlag Odds Björnssonar

Útgáfustaður:

Akureyri

Útgáfuár:

1978

Höfundur:

Erlingur Davíðsson

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nói bátasmiður – endurminningar Kristjáns Nóa Kristjánssonar”