Ljós og lampar
Það er einstaklega gefandi að vinna með ljós. Í þessari áhugaverðu bók sýnir höfundurinn hvernig útbúa má lampa, ljósker og skerma – til gleði og skrauts og til að fá útrás fyrir hugmyndaflugið. Hér eru lítil og stór föndurverkefni sem geta skapað vellíðan og stemningu úti eða inni, með góðum útskýringum, teikningum og munstrum.
Langar þig að búa til nýtt veggljós eða hressa upp á gamlan lampa?
Það er mjög misjafnt hve mikillar vinnu hvert ljós krefst. Ef til vill þarf bara skæri og lím í sum en önnur krefjast bæði smíða og saumavélar. Hvort sem ykkur þykir gaman að sauma eða smíða, eða eruð gefin fyrir rómantískan léttleika eða grófan einfaldleika þá finnið þið hér eitthvað við ykkar hæfi. Byrjið strax að lýsa upp hversdagsleikann! (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Ljós og lampar er skipt niður í átta kafla, þeir eru:
- Pappír
- málað á pappír
- verkfæri, áhöld og efni
- uppsetning, brunahætta og öryggi
- Grímur – lausir skermar
- almenn aðferð
- sumarblóm og fiðrildi
- hringir og drekaflugur
- náttlampi og tveimur skermum
- Lýsandi hjörtu
- heilandi ljósakassar með hjarta …
- hjartaljósasería
- loftljós með ljósrauðum hjörtum
- þrjú rauð hjörtu
- fjórar rauðar rósir
- Rendur
- gult loftljós
- rauðgulur borðlampi
- sprettkertaljósker
- Úr trjágreinum
- ljóskróna með rauðum riddarastjörnum
- þríhyrndur kyndill
- gult veggljós
- bleikt veggljós
- borðlampi úr hesligreinum
- hvítt og grænt veggljós
- bergfléttustjarna
- hænulampi
- hrís með ljósi
- Hellaristur
- tjald
- á borðið
- einhver býr í ostinum!
- leikið með lerki
- hvít fiðrildi
- Rendur frá Japan
- borðlampi
- veggljós
- Vírnet
- loftljós
- rauður fönklampi
- mósaík
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.