Litla kaffihúsið í Kaupmannahöfn
Kate Sinclair finnst líf hennar í London vera fullkomið. Hún á hrífandi kærasta og nýtur velgegngi í heimi glæsileika. En þá svíkur kærastinn hana og hreppir sjálfur stöðuhækkunina sem hún hafði sóst eftir. Niðurbrotin fer hún að efast um sjálfa sig og allt – og verður einfaldlega að komast burt.
Við kertaljós, notalegar kvöldstundir og rómantískar gönguferðir um fagrar steinlagðar götur Kaupmannahafnar uppgötvar Kate hvernig á að njóta lífsins á danska vísu. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Tilnefnd til bestu ljúflestrarbókarinnar í Bretlandi: Romance of the Year Awards 2019
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.