Litla bakaríið við Strandgötu
Ástarsaga með uppskriftum!
Líf Pollyar Waterford er heldur dapurlegt: Fyrirtækið er gjaldþrota, fína íbúðin horfin undir hamarinn og kærastinn fluttur heim til mömmu. Sárblönk neyðist Polly til að flytja í hrörlegt hús í litlu sjávarþorpi í Cornwall þar sem hún þekkir ekki nokkurn mann. Til að gleyma sorgum sínum hellir hún sér út í það sem veitir henni mesta ánægju í lífinu: að baka brauð. Fljótlega rennur þorpið á lyktina og fyrr en varir hefur Polly tekið við rekstri bakarísins á staðnum. Hér kynnist hún litríkum þorpsbúunum: sjómanninum Tarnie og skipsfélögum hans, myndarlega bandaríska býflugnabóndanum Huckle og ríka, skrautlega vini hans Reuben, skapilla bakaríseigandanum Gill Manse og hinum óframfærna Jayden, svo ekki sé minnst á Kerensu, kjaftforu og hressu vinkonuna úr borginni. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.