Lífsbók Laufeyjarf
Laufey Jakobsdóttir hefur oft verið kölluð „amman í Grjótaþorpinu“. Af eldmóði hugsjónanna hefur hún komið mörgum til aðstoðar í erfiðleikum þeirra, hún hefur verið málsvari smælingjanna og ekki spurt um tíma né fyrirhöfn þegar þeir hafa leitað náðir hennar. Hún hefur um árabil fylgst með skuggahliðum mannlífsins í miðbæ Reykjavíkurborgar, látið til sín heyra og verið ófeimin við að láta skoðanir sínar í ljós og gera tillögur um úrbætur.
Laufey Jakobsdóttir á sér merka sögu. Hún er baráttukona sem alin er upp við erfiðar aðstæður og kröpp kjör eins og fjöldi annarra Íslendinga á hennar aldir. En hún hefur aldrei látið bugast heldur skipað sér í fremstu víglínu í réttindabaráttunni. (Heimild: bakhlið bókarinnar)
Bókin Lífsbók Laufeyjar eru 44 kaflar, þeir eru:
- Í faðmi föður
- Að Snotrunesi
- Sleikti froðuna
- Móðir „í fjötrum“
- Heyrði grátinn út á hlað
- Ekki allt fengið með prófum
- Fólkið í Flóanum
- Stráksleg stelpa
- Vistin var köld og hörð
- Móðir mín – grasakonan
- Aftur austur
- Náttúrubarn
- Vinnukona í Reykjavík
- Af „kommum“ og nasistum
- Kápan kostaði 75 krónur
- Ýmsar breytingar
- Móðir og húsmóðir
- Saumaði föt úr ullarteppum
- Blómatími í Hveragerði
- Hörð lífsbarátta
- Magnús og börnin
- Anna systir mín
- Pólitík
- Stöndum vörð um gömlu húsin
- Umdeilt lesendabréf
- Á Hlemmi
- Á klósettinu í Grjótaþorpi
- „Þú áttir að leyfa mér að deyja“
- „Þú getur sjálfri þér um kennt“
- Lögreglan
- Kerfið og krókódílamennirnir
- Svívirðilegar yfirheyrslur
- Bundinn við rúmgafl
- Eins og brotajárn frá hernum
- Kvennapólitíkin
- Bílstjórinn var líka kona
- Varð að hlýða til að halda lífi
- Gorbatsjof táraðist
- Andlegu sárin gróa aldrei
- Dulræn reynsla
- Við finnum ekki trúna í kirkjum
- Aldraðir eru „annars flokks“
- Gamalt fólk er hlunnfarið
- Eftirmáli
Ástand: gott
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.