Leyniskyttan
Það hugsar enginn um dauðann á fallegum vordegi. Ekki heldur maðurinn sem steig út úr stórhýsi við Culver Avenue þennan morgun. Hann var reyndar uppfullur að hugsunum um lífið. Hann leiddi hugann að því að í næstu viku yrði hann fjörutíu og fimm ára en samt fannst honum hann ekki deginum eldri en þrjátíu og fimm … Um þetta og margt fleira var hann að hugsa meðan byssukúlan söng í hressandi vorloftinu á leið sinni ofan á þaki hússins á móti. Hún hitti manninn milli augnanna.
Lögreglumennirnir Steve Carella og Meyer Meyer fá málið til rannsóknar og brátt fylgja fleiri leyniskyttumorð í kjölfarið. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)
Ástand: gott, laus við allt krot og nafnamerkingu
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.