Klækjabrögð

FBI-fulltrúinn Drex Easton er heltekinn af því að hafa hendur í hári hrapps sem eitt sinn gekk undir nafninu Weston Graham. Með klækjum og dulargervum hefur Weston haft auðinn af átta ríkum konum sem síðan hafa horfið sporlaust. Þessar konur áttu það eitt sameiginlegt að hafa skyndilega eignast nýjan eiginmann sem hvarf svo líka sporlaust. Drex er sannfærður um að Weston hafi myrt konurnar. Weston hefur jafnan tekist að komast undan á síðustu stundu þegar alríkislögreglan hefur verið á hæla hans – og Drex gerir sér ljóst að eina leiðin til að fanga hann er að vera honum snjallari í klækjabrögðum …

Bandaríski verðlaunahöfundurinn Sandra Brown hefur skrifað yfir 70 skáldsögur sem allar hafa ratað í efstu sæti metsölulista. (Heimild: Bakhlið bókarinnar)

Ástand: gott, laus við allt krot eða nafnamerkingu.

Klækjabrögð - Sandra Brown

kr.250

1 á lager

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,450 kg
Ummál 12 × 3 × 20 cm
Blaðsíður:

485

ISBN

9789935213952

Kápugerð:

Kilja

Heitir á frummáli

Outfox

Útgefandi:

Bókafélagið Ugla

Útgáfustaður:

Reykjavík

Útgáfuár:

2022

Hönnun:

Eyjólfur Jónsson (umbrot), Aðalsteinn Svanur Sigfússon (kápuhönnun)

Íslensk þýðing

Ragnar Hauksson

Höfundur:

Sandra Brown

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Klækjabrögð”